Sigríður Inga Viggósdóttir framkvæmdastjóri Lummudaga

Gengið hefur verið frá ráðningu Sigríðar Ingu Viggósdóttur sem framkvæmdastjóra Lummudaga en Lummudagar í Skagafirði munu fara fram dagana 23. – 25. júní. Sigríður Inga er nú þegar farin á fullt með undirbúning og lofar góðri skemmtun en minnir á að auðvitað verði skemmtunin líka undir okkur sjálfum komin.

„Þetta leggst mjög vel í mig okkur langar að hafa aðeins breytt snið á þessu í ár og byrja á fimmtudagskvöldinu með setningu við siglingaklúbbinn eins og verið hefur og að þá verði þeir sem ætla að skreyta í kringum sig kannski búnir að því,“ sagði Sigríður í samtali við Feyki.

Sigríður sagði jafnframt að stefnt væri að því að hafa götugrillið sem verið hefur á laugardeginum á föstudagskvöldinu til að bæjarbúar væru með lausa stund á laugardagskvöldinu þegar haldin verður sameiginlega kvöldvaka með þátttakendum á Landsbankamóti. „Auðvitað segjum við engum hvenær þeirra götugrill á að fara fram en þetta er svona tilraun sem við viljum gera með þetta.“

Líkt og undanfarin ár verður leitað til heimamanna hvað skemmtiatriði varðar og biður Sigríður Inga þá sem vilja vera með uppákomu endilega að setja sig í samband við sig. „Á laugardeginum verður síðan götumarkaðsstemning og um að gera fyrir þá sem vilja gera eitthvað heima hjá sér eða bjóða upp á lummur að láta vita svo hægt veði að setja það i´dagskránna,“ segir Sigríður.

Hægt er að ná í Sigríði í síma 8688018 eða í netfangið sigridurv09@ru.is

Fleiri fréttir