Sigur hjá drengjaflokki
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
10.04.2015
kl. 12.04
Drengjaflokkur Tindastóls í körfu sigraði sl. miðvikudag lið Breiðabliks í framlengdum leik 107-93. Á vef Tindastóls segir að lið Breiðabliks hafi verið sterkari aðilinn lengi vel en svo náðu Stólastrákarnir að jafna í enda leiksins og koma honum í framlengingu.
„Pétur átti stórleik og endaði með 42 stig, þar af 10 í framlengingunni, Viðar var með 23 stig, Finnbogi og Pálmi voru báðir með 16 stig og Hannes með 10. Frábær sigur hjá strákunum og þeir því komnir í fjögurra liða úrslit í sínum flokki,“ segir á vef Tindastóls.