Sigur í æfingaleik gegn Hamri í fótboltanum
Sunnanlið Tindastóls í knattspyrnu spilaði æfingaleik í Kórnum sl. föstudag gegn Hamri frá Hveragerði. Óskar Smári Haraldsson skoraði bæði mörk Stólanna manna í 2-1 sigri.
Á heimasíðu Tindastóls segir að liðið hafi fengið liðsstyrk frá Hattar- og Huginsmönnum til þess að fylla í lið og hóp en það var hinsvegar Óskar Smári Haraldsson "Brautarholtsprinsinn" sem skoraði bæði mörk Stólanna.
Næsti leikur Tindastóls er í Lengjubikarnum, 11. mars gegn Keflavík og fer leikurinn fram í Reykjaneshöllinni.