Sigur og tap hjá drengjaflokki

Drengjaflokkur Tindastóls í körfubolta léku tvo leiki í Íslandsmótinu um helgina þar sem þeir unnu á Skaganum en töpuðu í Smáranum. Leikurinn gegn ÍA vannst 89-54 en í Smáranum töpuðu strákarnir gegn liði Breiðabliks 61-86.

Á Tindastóll.is segir að þrátt fyrir tapið gegn Blikum eru strákarnir í öðru sæti síns riðils eftir sigurinn á ÍA. Blikarnir eru tveimur stigum á eftir, en eiga leik til góða og hafa náð sér í betri stöðu í innbyrðisviðureignum liðanna. Tveir leikir eru eftir í Íslandsmótinu hjá drengjaflokknum, heimaleiki gegn ÍA 17. mars og gegn toppliði Njarðvíkur 23. mars og eru allir hvattir til að mæta í Síkið og hvetja þá til sigurs.

Staðan í A-riðli.

Fleiri fréttir