Sigurjón áfram formaður

Aðalfundur Frjálsíþróttadeildar Tindastóls var haldinn í Vallarhúsinu á Sauðárkróksvelli mánudaginn 21. febrúar. Íþróttastarfið gekk mjög vel á síðasta ári og töluverð fjölgun varð í iðkendafjölda. Deildin var rekin með nokkrum halla á árinu, en er engu að síður alveg skuldlaus.

Sigurjón Leifsson formaður, Guðrún Ottósdóttir gjaldkeri og Eiður Baldursson ritari voru endurkjörin í stjórn, en Hafdís Ólafsdóttir og Þórunn Ingvadóttir komu nýjar inn í stjórn, í stað Kolbrúnar M. Sæmundsdóttur og Þorsteins T. Broddasonar sem ekki gáfu kost á sér áfram.

Íþróttafólkinu, þjálfurunum, foreldrum og stuðningsaðilum voru þökkuð frábær störf í þágu deildarinnar.

Fleiri fréttir