Sigvalda vel fagnað í Hofsós

Umhyggjugöngu Sigvalda Arnars Lárussonar, lögreglumanns í Keflavík, lauk í Hofsósi á laugardaginn. Hafði Sigvaldi þá gengið frá Keflavík í Hofsós og þar með staðið við þá yfirlýsingu sína á facebook að yrði Gylfi Sigurðsson ekki kjörinn íþróttamaður ársins 2014 skyldi hann ganga frá Keflavík á bernskuslóðirnar á Hofsósi.

Þrátt fyrir erfið veðurskilyrði og meiðsli tókst Sigvalda að ljúka göngunni, en hann þurfti þó að stytta leiðina dálítið og mun ljúka þeim 30 km sem upp á vantar áður en söfnuninni til styrktar Umhyggju lýkur.

Við komuna við Hofsós sagði Sigvaldi að oft hefði verið gott að koma á Hofsós og stinga sér í sundlaugina þar, en aldrei sem nú. Honum var innilega fagnað af heimamönnum, en UMF Neisti og Björgunarsveitin Grettir höfðu skipulagt móttöku honum til heiðurs og var boðið upp á grillaðar pylsur við sundlaugina.

Fleiri fréttir