Sigvaldi kominn á Krókinn
Sigvaldi Arnar Lárusson lögreglumaður í Keflavík, sem undanfarna daga hefur gengið frá Keflavík áleiðis í Hofsós í svokallaðri Umhyggjugöngu, kom á Sauðárkrók seinnipartinn í dag. Hann á því um 37 km eftir af göngunni og mun ljúka þeim seinnipartinn á morgun, ef allt gengur að óskum.
Sigvaldi lenti í slæmu veðri á Holtavörðuheiði og hefur glímt við meiðsli sem töfðu hann um einn dag, það er hann þurfti að hvíla einn dag. Í gær gekk hann svo 30 km frá Blönduósi inn á Þverárfjall með fjórum félögum sínum úr lögreglunni á Suðurnesjum.
Í dag lauk hann svo ferðinni yfir Þverárfjall á Sauðárkróki. Vegna tafarinnar var leiðin stytt um 30 km en Sigvaldi segist ljúka þeim 30 km sem hann „skuldar“ til að ná 370 km alls áður en söfnun í tengslum við gönguna líkur.
Þegar blaðamaður Feykis hitti Sigvalda á áningarstað á Þverárfjalli í dag var María Hauksdóttir, sem margir Skagfirðingar kannast við, með honum í för og er hún búin að ganga með honum alla daga. „Ég frétti bara af því á mánudegi að það væru allir velkomnir með og ákvað að drífa mig enda frábært tækifæri. Ég er ekki búin að ganga alla leið en eitthvað alla dagana.“
Eins og sagt var frá hafa UMF Neisti, Björgunarsveitin Grettir og fleiri íbúar Hofsóss skipulagt veglegar móttökur þegar Sigvaldi kemur í bæinn. Verður tekið á móti honum og föruneyti hans við sundlaugina.