Sigvaldi og stelpurnar með faglegasta atriðið

Á heimasíðu Hús frítímans segir frá því að Sigvaldi Helgi Gunnarsson ásamt 7 stúlkna kór, sem voru fulltrúar Félagsmiðstöðvarinnar Friðar í Skagafirði fengu verðlaun fyrir faglegasta atriðið í söngkeppni Samfés sem fram fór í troðfullri Laugardalshöll síðasta laugardag. Þau fluttu lagið Þú fullkomnar mig með Sálinni hans Jóns míns. Þrjátíu atriði komust áfram í lokakeppnina en áður höfðu farið fram forkeppnir í hverjum landshluta fyrir sig. Um 4400 unglingar frá flestum eða öllum félagsmiðstöðvum á landinu hlýddu á keppnina. að undangengnum forkeppnum í hverjum landshluta.

Það var félagsmiðstöðin Hólmasel Reykjavík sem sigraði, í öðru sæti varð

100&einn Reykjavík og í þriðja sæti , Rauðagerði Vestmannaeyjum

Faglegasta atriðið var eins og áður sagði frá Friði í Skagafirði og verðlaun fyrir bestu þýðingu á texta fékk atriðið frá Fönix í Kópavogi.

Fleiri fréttir