Sindri Már vinnur í Eldvarnagetraun
Í morgun heimsóttu þeir Svavar Birgisson og Vernharð Guðnason hjá Brunavörnum Skagafjarðar, þriðja bekk Árskóla til að veita einum heppnum nemanda viðurkenningu fyrir rétt svör í Eldvarnagetraun LSS sem lögð var fyrir alla 3. bekkinga í grunnskólum landsins í nóvember s.l.
Alls fengu 32 krakkar út um allt land viðurkenningu fyrir rétt svör og var Sindri Már Gústavsson einn hinna heppnu en hann fékk að gjöf Mp3 spilara.
Sindri Már var að vonum kátur þegar hann var búinn að fá spilarann og aðspurður um hvernig getraunin hefði verið sagði hann það aðalega þurft að skrifa undir og senda hana.
Sindri er búinn að skipuleggja flóttaleið heima hjá sér ásamt fjölskyldunni ef illa fer. –Við erum ekki búin að skrifa hana niður en við vitum hvar við eigum að hittast, segir Sindri en það er hjá ljósastaurnum út á plani.
Sindri segist eiga annan MP3 spilara heima en hann er þess fullviss að geta selt pabba sínum hann fyrst kominn er nýr í hans eigu.
Feykir óskar Sindra til hamingju með viðurkenninguna.