Sjálfstæðismenn í Reykjavík leggjast gegn flutningi gæslunnar
Borgarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu á fundi borgarstjórnar þann 16. júní síðastliðinn fram tillögu þess efnis að borgarstjórn legðist eindregið gegn hugmyndum um flutning á starfsemi landhelgisgæslunnar frá Reykjavík, hvort sem um væri að ræða að hluta til eða í heild.
Flutningur reksturs skipa Landhelgisgæslunnar í Skagafjörð var ein af þeim tillögum sem fram komu á vegum landshlutanefndar ríkisstjórnarinnar og kynntar voru í desember sl., en ríkisstjórnin samþykkti í maí á síðasta ári að skipa sérstaka landshlutanefnd fyrir Norðurland vestra til að koma með tillögur um eflingu byggðar, fjárfestinga og atvinnulífs á svæðinu, eins og Feykir hefur áður greint frá.
Tillaga sjálfstæðismanna í borgarstjórn var eftirfarandi:
Borgarstjórn leggst eindregið gegn hugmyndum um flutning á starfsemi Landhelgisgæslunnar frá Reykjavík, hvort sem um er að ræða að hluta til eða í heild. Borgarstjórn lýsir yfir fullum vilja til að búa þannig að starfsemi Landhelgisgæslunnar í borginni, jafnt flugdeild sem skiparekstri stofnunarinnar, að hún nái að þróast og eflast.
Á fundi borgarstjórnar var samþykkt með ellefu atkvæðum að vísa tillögunni til meðferðar borgarráðs en borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins. Lögðu þeir fram svohljóðandi bókun:
Athyglisvert er að fulltrúar Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata, Vinstri grænna og Framsóknar og flugvallarvina kjósi að vísa fyrirliggjandi tillögu til nefndar í stað þess að afgreiða hana á þeim vettvangi þar sem hún er lögð fram, þ.e. í borgarstjórn. Slík afgreiðsla vekur spurningar um raunverulegan vilja borgarstjórnarmeirihlutans fyrir því að Landhelgisgæslan verði áfram í Reykjavík og að búið verði þannig að starfsemi hennar í borginni, jafnt flugdeild sem skiparekstri stofnunarinnar, að hún nái að þróast og eflast.
Ekki var fjallað um málið á fundi nr. 5364 í borgarráði þann 18. júní sl. en síðasta fundargerð ráðsins sem aðgengileg er á vef Reykjavíkurborgar er frá þeim degi.