Sjávarsæla á Sauðárkróki
Það verður mikið um dýrðir við höfnina og Kjarnann á morgun þegar Sjávarsæla 2011 fer fram. Boðið verður upp á skemmtisiglingu, kassaklifur og fleira skemmtilegt en hátíðarhöldin enda síðan í íþróttahúsinu annað kvöld.
Dagskrá sjómannadagsins á Sauðárkróki er eftirfarandi;
Dagskrá hefst kl 10:30 með skemmtisiglingu í boði Fisk Seafood hf.
Kaffisala Slysavarnardeildar Skagfirðingasveitar í Verinu frá kl 12-16. - Seld verða merki Sjómannadagsins
Skemmtidagskrá hefst síðan kl 13:00 við Kjarnann.
- Kappróður, kassaklifur, hoppukastalar, fiskasýning.
- Jói G. og Gunni Helga skemmta börnunum
- Grillaðar verða pylsur í boði Skagfirðingabúðar.
Sjávarsæla í íþróttahúsinu kl.20:00.
Matur-skemmtun-ball.
Hljómsveit Geimundar Valtýssonar spilar, veislustjóri er Óskar Pétursson og skemmtikraftar verða Jói G. og Gunni Helga.