Sjávarsæla á Sauðárkróki 2013

Í tilefni sjómannadagsins verður Sjávarsæla 2013 á Sauðárkróki á laugardaginn kemur, þann 1. júní. Við höfnina verður boðið upp á dorgveiðikeppni, kappróður og fiskasýningu, skemmtisiglingu og fleira. Slysavarnardeildin verður með kaffisölu og um kvöldið verður veisla í íþróttahúsinu.

Dagskrá Sjávarsælu 1. júní 2013

Kl 10:30: Dorgveiðikeppni fyrir börnin.

Verðlaun fyrir stærsta fiskinn frá Tengli.

Ísnet verður með opið hús og sýnir sjónvarpsþætti Árna Gunnarssonar um sjómannslífið.

Kappróður og fiskasýning.

Kl 12:30: Skemmtisigling í boði FISK með Málmey SK 1.

Pylsur, súpa, gasblöðrur fyrir börnin, candyfloss, hoppukastalar, andlitsmálning.

Allt frítt í boði ýmissa fyrirtækja.

Flotgallasund, koddaslagur, reipitog og kassaklifur.

Siglingaklúbburinn Drangey býður upp á siglingar í höfninni.

Sigvaldi Helgi og Reynir Snær taka lagið.

Verðlaunaafhending í lokin.

12:00-16:00: Kaffisala slysavarnardeildar Skagfirðingasveitar á Kaffi Krók, neðri sal.

Kl 20:00: Matur-skemmtun-ball í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki.

Hlaðborð með forréttum aðalréttum og eftirréttum.

Veislustjóri verður Guðni Ágústsson.

Dansleikur með hljómsveitinni Von, ásamt Ingó veðurguð og Siggu Beinteins hefst á miðnætti.

Fleiri fréttir