Sjómannadagurinn á Hofsósi

Á Hofsósi verður sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 7. júní. Dagskrá hefst kl. 13:00 á helgistund við minnisvarða um látna sjómenn í kvosinni. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir ásamt kirkjukór Hofsóskirkju leiðir athöfnina.

Eftir helgistund verður dagskráin á bryggjusæðinu þar sem ýmis skemmtun verður, svo sem dorgveiðikeppni, koddaslagur, sigling og fleira.

Að lokinni skemmtun á hafnarsvæðinu um kl. 15 mun Slysavarnardeildin Harpa vera með kaffisölu í Höfðaborg. Allir eru boðnir hjartanlega velkomnir á hátíðarhöldin sem eru í umsjá Björgunarsveitarinnar Grettis og slysavarnardeildarinnar Hörpu.

Fleiri fréttir