Sjómannadagurinn á Sauðárkróki

Dagskrá sjómannadagsins á Sauðárkróki er fjölbreytt að vanda. Hún hefst við höfnina kl 10:00 um morguninn með dorgveiði. Einnig verður boðið upp á skemmtisiglingu með Málmey, ýmis konar veitingar og skemmtilegar keppnir. Um kvöldið verður svo Sjávarsæla 2015 í íþróttahúsinu.

Dagskráin er eftirfarandi:

Kl. 10:00

Dorgveiðikeppni fyrir börnin.
Verðlaun fyrir stærsta fiskinn frá Tengli
Furðu-Fiskasýning og kappróður

Kl. 12:00
Skemmtisigling með Málmey SK-1 í boði Fisk Seafood. Við hvetjum smábátaeigendur til þess að sigla með þegar Málmey leggur úr höfn.

Að skemmtisiglingu lokinni verða grillaðar pylsur í boði Skagfirðingabúðar og Fiskisúpa skenkt að hætti Gott í gogginn. Vífilfell býður upp á Coka Cola og Latabæjarsafa með matnum. Candyfloss og ískrapið verður einnig á sínum stað. 9. Bekkur Árskóla sér um andlitsmálningu fyrir börn.

Keppt verður í flotgallasundi, koddaslag, reipitogi og kassaklifri.

Spurningakeppni verður um fiskana á furðu-Fiskasýningunni og um þyngd hákarlsins sem Klakkur SK5 kom með í land.

Siglingaklúbburinn Drangey býður upp á siglingar í höfninni.

Björgunarsveitin Skagfirðingasveit sér um eftirlit og gæslu á svæðinu. Kærleiksbjörninn verður á svæðinu með glaðning fyrir börnin.

Kaffisala Skagfirðingasveitar verður á Mælifelli, er fólk hvatt til að líka inn og styrkja Björgunarsveitina. Kaffisalan stendur kl. 12-16.

Ljósmyndamaraþon Canon og Nýherja stendur yfir á meðan á dagskrá stendur. Þeir sem vilja taka þátt þurfa að senda bestu myndirnar sínar í fullri upplausn á sjavarsaela@davidmar.net eða á Sjávarsælu á fésbókinni. Vegleg verðlaun eru í boði.

Kl. 20:00 hefst Sjávarsæla 2015 í íþróttahúsinu

Borðhald hefst kl 20:30 og verður boðið upp á fjölbreytt hlaðborð með forréttum, aðalréttum og eftirréttum.

Frábær skemmtun sem er öllum opin, ekki bara sjómönnum. Miðaverð er aðeins kr. 7.500. Dansleikur hefst á miðnætti og eru miðar á hann seldir við innganginn á kr. 2000. Opið er fyrir pantanir í síma 453 6454. Aldurstakmark er 18 ár.

Fleiri fréttir