Sjóveita í rækjuvinnsluna
Í síðasta mánuði var Rækjuvinnslan Dögun tengd við sjóveitu og notar nú sjó úr borholum á Sandfangaranum við Sauðárkrókshöfn við framleiðslu sína en rækjuvinnsla er mjög vatnsfrek framleiðsla og hefur valdið mörgu byggðalaginu höfuðverk við að útvega það magn af köldu vatni til framleiðslunnar sem þarf, bæði hér á landi sem erlendis.
Það er vel þekkt erlendis að nota sjó til plokkunar rækju þar sem vatn er ekki í boði og vegna þessa fóru Skagafjarðarveitur út í það að bora eftir sjó við höfnina á Sauðárkróki til að létta á kaldavatnsnotkunin sem hefur verið höfuðverkur nú um nokkur ára skeið vegna sí minnkandi úrkomu á svæðinu.
Á heimasíðu Skagafjarðaveitna segir að eftir ráðgjöf Þórólfs Hafstað jarðfræðings hjá ÍSOR voru boraðar tvær holur í Sandfangarann við höfnina á Sauðárkróki með nokkrum árangri.
Holurnar eru fóðraðar með 14“ stálrörum og eru rúmlega 30 metra djúpar. Efst var fóðrað í gegnum ca. 8 metra þykkt malar- og sandlag þá tók við mjög þéttur leir næstu 20 metra síðan 1,5 – 2 metra lag af möl en síðan klöpp í um 30 metra dýpi. Stálfóðringin var síðan götuð þar sem malarlagið var.
Dælum var komið fyrir í holunum og gefa þær hvor um sig um 8 l/sek af 22 ‰ söltum sjó. Rækjuvinnslan Dögun er að nota um 12 l/sek þegar vinnslan er í gangi og munar það miklu í kaldavatnshallærinu.