Skagafjörður gæðaáfangastaður Íslands 2015

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur verið útnefnt sem gæðaáfangastaður Íslands 2015 fyrir verkefnið Matarkistan Skagafjörður. Þetta ákvað valnefnd EDEN verkefnisins á Íslandi,. Evrópska EDEN verkefnið stendur fyrir „European Destination of Excellence“ en Ferðamálaskrifstofa er aðili að verkefninu fyrir Íslands hönd. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á gæðum, fjölbreytileika og sameiginlegum einkennum Evrópskra áfangastaða og kynna til sögunnar nýja, lítt þekkta, áfangastaði vítt og breitt um Evrópu þar sem áhersla er lögð á ferðaþjónustu í anda sjálfbærni.

Af þessu tilefni er haldin samkeppni um gæða áfangastaði í Evrópu annað hvert ár með nýju þema í hvert sinn. Þema ársins 2015 var matartengd ferðaþjónusta og sérstök valnefnd yfirfór þær umsóknir sem bárust frá íslenskum áfangastöðum. Nefndina skipaði þau Guðmundur Jón Guðmundsson, fulltrúi Beint frá býli, Sigríður Kristjánsdóttir, fulltrúi Nýsköpunarmiðstöðvar, Ragnheiður Sylvía Kjartansdóttir, fulltrúa Íslandsstofu og Lára Pétursdóttir, fulltrúi SAF.

Í niðurstöðu valnefndar segir:

 „Matarkistan Skagafjörður á sér langa sögu og fyrsta samstarfsverkefni sinnar tegundar á sviði matartengdrar ferðaþjónustu hér á landi. Má því segja að verkefnið hafi rutt veginn og undirbúið jarðveginn fyrir önnur slík verkefni víða um land og sé því sannkallað frumkvöðlaverkefni. Afurðir verkefnisins hafa verið margar og fjölbreyttar í gegnum tíðina, en þar má m.a. nefna árlega Hrossaveislu, fyrirlestra og námsefni á vegum Hólaskóla og matreiðslubókina Eldað undir bláhimni. Nefndin telur verkefnið vel að heiðrinum komið og vonast til að tilnefningin verði til að efla enn frekar matartengda ferðaþjónustu í Skagafirði, sem og á landinu öllu.“

Nánar má lesa um málið hér.

Heimasíða verkefnisins Matarkista Skagafjarðar

Fleiri fréttir