Skagafjörður í Útsvari í kvöld
Í kvöld mætast lið Skagafjarðar og Snæfellsbæjar í átta liða úrslitum Útsvarsins. Það lið sem vinnur fer í fjögurra liða úrslit með Reykjavíkurborg, Fjarðabyggð og Reykjanesbæ. Stuðningsmönnum Skagafjarðar er boðið að horfa á í beinni útsendingu uppi í Efstaleiti.
Húsið opnar klukkan 19:30 en þátturinn byrjar kl. 20:00 og eru öflugir stuðningsmenn sem vilja horfa á þáttinn og hvetja okkar fólk til dáða hvattir til að mæta á svæðið tímanlega því sætaframboð er takmarkað. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Áfram Skagafjörður!