Skagafjörður sniðgenginn í samgönguáætlun

Á fundi sínum í gær lýsti Byggðarráð Sveitarfélagins Skagafjarðar vonbrigðum og þungum áhyggjum af framkominni samgönguáætlun 2015-2018 þar sem Skagafjörður er sniðgenginn. Engu fé verður varið í vegaframkvæmdir í Skagafirði samkvæmt þingsályktunartillögu.

Á fundinum voru lögð fram drög að umsögn um tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2015-2018. Var eftirfarandi bókað í fundargerð byggðaráðs:

„Ljóst er að við núverandi tillögur veður vart unað og óliðandi að ekki verði einni krónu veitt í vegaframkvæmdir í Skagafirði á umræddu tímabili, 2015-2018, sem og að svo virðist vera að búið sé að taka Alexandersflugvöll út úr grunnneti innanlandsflugs. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar krefst þess að stjórnvöld endurskoði áform sín og taki tillit til þarfa svæðisins í sinni áætlunargerð.“

Fleiri fréttir