Skagfirðingar keppa í Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld

Hin árlega og geysivinsæla Söngvakeppni Sjónvarpsins verður haldin um helgina og sýnd í beinni útsendingu bæði í kvöld og annað kvöld. Sigurvegari keppninnar verður svo væntanlegur fulltrúi Íslands í Eurovision keppninni sem fram fer í Svíþjóð þann 16. maí. Meðal keppenda að þessu sinni eru Skagfirðingarnir Svavar Knútur og Hreindís Ylva og munu þau vera þriðju á svið í kvöldið er þau flytja lagið Lífið snýst eftir Hallgrím Óskarsson.

Þrjú lög frá hvoru undanúrslitakvöldi komast áfram í úrslit Söngvakeppninnar sem fer fram í Eldborg í Hörpu laugardagskvöldið 2. febrúar. Hverju lagi hefur verið úthlutað símanúmeri og gefst fólki kostur á að greiða þeim atkvæði í símakosningu sem að þessu sinni hefur jafnt vægi og mat dómnefndar, sem skipuð er sérstaklega fyrir Söngvakeppnina. Skipuleggjendur keppninnar hafa gefið það út að þeir áskilji sér rétt til að bæta sjöunda laginu við, ef ástæða þykir til.

Hreindís Ylfa á ættir að rekja til Sauðárkróks þar sem móðir hennar Hulda Jónasdóttir ólst upp en hún er dóttir þeirra Erlu Gígju og Ninna málara.

Í Feyki sem kom út í gær er viðtal við Hreindísi en þar segir hún meðal annars að henni lítist ljómandi vel á breytingar sem gerðar hafa verið á keppnisfyrirkomulaginu.

-Ekkert að því að breyta til annað slagið og prófa eitthvað nýtt. Þetta er mjög þétt og spennandi ferli núna, rétt rúmlega vika, á móti fimm til sex vikum sem ferlið tók frá fyrsta þætti þangað til framlagið var valið síðast þegar ég tók þátt, segir Hreindís.

Svavar Knútur Kristinsson.

Svavar Knútur er einnig Skagfirðingur en hann bjó á uppvaxtarárum sínum á Skálá í Slettuhlíð.

Feykir óskar þeim Hreindísi Ylfu og Svavari Knúti góðs gengis í keppninni og hvetur alla landsmenn til að vera þeim hliðholl í atkvæðagreiðslunni enda þeirra framlag vel til fallið að fara áfram í úrslitakeppnina.

HÉR má nálgast öll lögin í keppninni.

Fleiri fréttir