Skagfirðingasveit bjó sig til leitar

Björgunarsveitir í Skagafirði voru kallaðar út kl 17:00 í gær til aðstoðar við leit að Þýskum ferðamanni sem hafði hringt í Neyðarlínuna og beðið um aðstoð nálægt Nýjadal.

Skagfirðingasveit var að leggja af stað með 3 snjósleða þegar afturkall barst og fannst ferðamaðurinn heill á húfi, TF-Gná þyrla Landhelgisgæslunnar fann manninn og var hann staddur um 14km SV af Fjórðungsöldu. Ekkert amaði að manninum en hann var kaldur og hrakinn.

/Bjargari.is

Fleiri fréttir