Skagfirðingasveit gerir upp sumarið
Samkvæmt heimasíðu Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveit var sumarið frekar rólegt hjá sveitinni og gátu félagsmenn almennt slappað af. „Stjórninni hlakkar til að takast á við verkefni vetrarins og hvetur félagsmenn til að vera virka í starfinu,“ segir á heimasíðunni.
„Engin útköll voru þangað til í ágúst en þá fór sveitin í þrjú útköll að ná í fasta bíla og þar af voru tvö þeirra upp við Hofsjökul,“ segir á heimasíðunni.
Þá var sveitin með nokkrar gæslur á viðburðum í sumar og má þar t.d. nefna Tónlistarhátíðina Gæruna um sl. síðustu helgi, dagana 24. - 25. ágúst.