Skagfirska mótaröðin í gang
Nú fer keppni í Skagfirsku mótaröðinni að hefjast en fyrsta mótið verður haldið miðvikudaginn 23. febrúar nk. þar sem keppt verður keppt í tölti í þremum flokkum: 1. flokki (keppnisvanir 1 inná), 2. flokki ( minna keppnisvanir 2 inná stjórnað af þul) og unglingaflokki 16 ára og yngri ( 2 inná stjórnað af þul). A-úrslit verða riðin í öllum flokkum.
Skráning er á svadastadir@simnet.is og í síma 8425240, fyrir kl: 22:00 á mánudag 21. febrúar. Gefa verður upp IS-númer hests, nafn knapa og uppá hvora hönd knapi ætlar að byrja (2.- og ungl.- flokkur). Skráningargjald er 1500.- og greiðist á mótstað áður en keppni hefst. Keppni hefst kl 19:30 og húsið opnar kl 19:00.