Skagfirskir grunnskólanemendur í Nýsköpunarkeppni - uppfært

Níu nemendur grunnskóla í Skagafirði, þrír frá Grunnskólanum austan Vatna, tveir frá Árskóla og fjórir úr Varmahlíðarskóla, komust áfram í Nýsköpunarkeppni grunnskólann. Um það bil 1975 hugmyndir bárust frá yfir 3000 hugmyndasmiðum víðsvegar af landinu en einungis 54 urðu fyrir valinu. 

Nemendurnir GaV heita Freydís Þóra, Linda Björk og Vigdís María, en hugmynd þeirra er útfærsla af kartöfluplokkara. Haraldur Óli Guðbergsson og Magnús Eli Jónsson í Árskóla voru með verkefni sem kallast „Deep planet worm“. Nemendur Varmahlíðarskóla voru með tvö verkefni; Óskar Aron Stefánsson og Orri Freyr Tryggvason voru með hárlosunarbursta og Jón Hjálmar Ingimarsson og Svend Emil Busk Friðriksson voru með plastþjöppu.

Í fréttatilkynningu segir að tilgangur NKG sé að gera börnum grein fyrir sköpunargáfu sinni (5., 6., og 7. bekkur) og þroska hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir. Virkja sköpunarkraft barna í landinu. Efla og þroska frumkvæði þátttakenda í NKG og styrkja þannig sjálfsmynd þeirra. Efla nýsköpunarstarf í grunnskólum og vekja athygli á hugviti barna í skólum og atvinnulífi.

Vinnusmiðja NKG 2015 verður fim. 28. maí. og fös. 29. maí. frá kl. 9.00-16.00 í Háskólanum í Reykjavík (HR) og lau. 30. maí í Arion banka Borgartúni. Lokahóf verður sun. 31. maí kl.13.00, í Sólinni í HR.

„Hugmyndir þátttakenda í vinnusmiðju eru fjölbreyttar og leysa þarfir og vandamál í daglegu lífi. Þar má nefna garnhaldara, barnabauk, endurvinnanlegt dross, blýanta – gorma – yddara, „sick“ tölvuleikur, ýmis öpp og fleiri skapandi hugmyndir,“ segir í fréttatilkynningu. Tilgangur vinnusmiðju er að hver þátttakandi fái tækifæri til að þjálfa sig í ferlinu – frá hugmynd að vöru til verðmæta.

Lokahóf fer fram sunnudaginn 31. maí kl. 13.00 í Sólinni (HR). Þar tilkynnir verndari NKG, forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson verðlaunahafa.

Vegleg verðlaun eru í boði frá Nýherja, Skema, HÍ, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og IKEA. http://nkg.is/nemendur/verdlaun. Illugi Gunnarsson, Mennta- og menningarmálaráðherra afhendir farandbikar til nýsköpunarskóla ársins í flokki minni og stærri grunnskóla. Þá stíga hugmyndasmiðir á stokk og segja frá hugmyndum sínum og fleira skemmtilegt, segir loks í fréttatilkynningu.

Fleiri fréttir