Skagfirskir hestamenn villtust af leið á Kili
Björgunarsveitir úr Skagafirði og Húnavatnssýslum leituðu í nótt fjögurra hestamanna sem skiluðu sér ekki á áfangastað í gærkvöldi. Þeir eru nú allir komnir í leitirnar, heilir á húfi.
„Þau voru fjögur ríðandi með 50 hesta stóð þegar það kom svarta þoka svo þau sáu ekki handa sinna skil,“ segir Rikke Busk í samtali við Feyki en eiginmaður hennar, Friðrik Smári Stefánsson, var með í ferðinni. Hestamennirnir villtust af leið er þeir lentu í þoku og slæmu skyggni. 20 manns leituðu hestamannanna í nótt en þokan gerði leitarmönnum erfitt fyrir.
Sem fyrr segir voru mennirnir þrír allir heilir á húfi og hið sama er að segja um hrossastóðið en að sögn Rikke voru þau heldur köld eftir nóttina undir berum himni.„Þetta var erfið nótt. Það var ekki hægt að vera í símasambandi við þau þar sem það þurfti að spara rafmagnið svo björgunarsveitarfólkið gæti fundið þau með þar til gerðum búnaði,“ sagði Rikke en þegar Feykir náði tali af henni er hún var á leið að fara hitta manninn sinn.
Á vef Landsbjargar segir að einn mannanna skilaði sér í skála við Áfanga í morgun en áfram var þriggja leitað. Þegar birti náðu mennirnir að hringja og láta vita af staðsetningu sinni. Voru þeir þá staddir vestan við vestara Friðmundarvatn, sem er töluvert úr leið sé miðað við áætlanir þeirra.