Skagfirskir nemendur í innlendum og erlendum samanburði
Í dag verður opinn kynningarfundur um niðurstöður úr PISA rannsókninni á læsi, stærðfræði og náttúrufræði (könnun OECD á stöðu grunnskóla) og niðurstöðum samræmdra prófa vorið 2010. Fundurinn verður haldinn í Safnahúsinu á Sauðárkróki þriðjudaginn 1. mars nk. kl. 16:00.
Þar mun Almar Halldórsson frá Námsmatsstofnun gera grein fyrir stöðu skagfirskra nemenda í innlendum og alþjóðlegum samanburði. Allir velkomnir – en foreldrar grunnskólabarna, starfsfólk grunnskóla og allt áhugafólk um skólastarf er sérstaklega hvatt til að mæta.