Skagfirskir sýningarhundar stóðu sig vel um helgina

Um síðustu helgi fór fram alþjóðleg hundasýning í Reiðhöllinni í Víðidal þar sem yfir átta hundruð hreinræktaðir hundar af 84 hundategundum fóru í dóm og meðal þeirra voru um tugur skagfirskra hunda sem allir komu með einhver verðlaun heim.

Sex dómarar frá sex löndum;  Danmörku, Finnlandi,  Írlandi, Lettlandi, Portúgal og Þýskalandi gáfu hundunum stig en megintilgangur hundasýninga er að meta hundana út frá ræktunarmarkmiði hvers kyns og leiðbeina ræktendum þannig í starfi sínu.

Meðal þeirra skagfirsku hunda sem tóku þátt var Bangsi, hundur af brihard-kyni 15 mánaða gamall og var að taka þátt í sinni fyrstu keppni. Náði hann glæsilegum árangri en hann krækti sér í 1. gráðu til alþjóðlegs meistara en einnig var hann valinn hundur sinnar tegundar. Eigendur Bangsa eru Ólína Valdís Rúnarsdóttir og Ólafur Smári Sævarsson á Sauðárkróki.

Kolbrá Önnu Bjarkar Arnardóttur fékk sitt þriðja stig til alþjóðlegs meistara en fjögur stig þarf að fá til að hundur öðlist þann heiður að verða alþjóðlegur meistari og segir Anna það geta orðið í nóvember næsta ef allt gengur að óskum.

Fleiri fréttir