Skákdagurinn í dag

Skák verður tefld víða um land í dag í tilefni af Skákdeginum sem haldinn er vegna afmælis Friðriks Ólafssonar fyrsta stórmeistara Íslendinga. Eru Íslendingar hvattir til að tefla í dag, hvort sem er á vinnustöðum, í skólum eða heimilum.

Atskákmót Sauðárkróks verður haldið í Safnahúsinu á Sauðárkróki og hefst kl. 20:00 í kvöld. Þrjár fyrstu umferðirnar verða tefldar í kvöld en síðan haldið áfram á þriðjudagskvöldum. Umhugsunartími verður 25 mínútur pr mann á skák.

Allir skákmenn og konur eru velkomnir og er skráning á staðnum.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Skákfélags Sauðárkróks:  www.skakkrokur.blog.is. Upplýsingar um skákdaginn má fá á heimasíðu Skáksambands Íslands www.skak.blog.is

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir