Skákfélag Sauðárkróks hélt sæti sínu í þriðju deild
Keppt var um síðustu helgi í síðari hluta Íslandsmóts Skákfélaga og sendi Skákfélag Sauðárkróks lið til keppni í þriðju deild. Eftir harða baráttu varð niðurstaðan sú að liðið endaði í 9-12 sæti af 16 liðum í deildinni og slapp því við fall í 4. deild.
Sigur vannst í tveimur viðureignum, jafnt varð í tveimur og þrjár umferðir töpuðust. Alls fékk félagið 18 vinning í umferðunum 7, en teflt er á 6 borðum í senn. Eftirtaldir tefldu fyrir félagið í mótinu: Jón Arnljótsson, Unnar Ingvarsson, Þorleifur Ingvarsson, Kristján Eiríksson, Christoffer Munkholm, Árni Þór Þorsteinsson, Guðmundur Gunnarsson, Davíð Örn Þorsteinsson og Birkir Már Magnússon.
Íslandsmót skákfélaga er fjölmennasta skákmót sem haldið er á Íslandi ár hvert. Um 400 keppendur mættu til leiks að þessu sinni á Selfoss og öttu kappi í Fjölbrautaskóla þeirra Sunnlendinga, þar á meðal voru nokkrir af sterkustu skákmönnum heims. Nánari upplýsingar um úrslit og mótið sjálft má fá á heimasíðu Skáksambands Íslands eða á heimasíðu Skákfélags Sauðárkróks.
/Fréttatilkynning