Skákfélag Sauðárkróks vann sig upp í 3. deild
Nú er nýlokið síðari hluta Íslandsmóts Skákfélaga, en Skákfélag Sauðárkróks sendi lið í keppni í 4. deild mótsins. Eftir heilmikinn barning tókst félaginu að verða í 2. sæti í deildinni og vinna sig þannig upp um deild. Nánar er fjallað um mótið á heimasíðu félagsins www.skakkrokur.blog.is
Meðfylgjandi er mynd af verðlaunaafhendingu.
Á myndinni eru f.v. Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands, Unnar Ingvarsson, Jón Arnljótsson, Árni Þór Þorsteinsson og Davíð Örn Þorsteinsson. Aðrir sem telfdu fyrir liðið í keppninni voru Hörður Ingimarsson, Guðmundur Gunnarsson og Freysteinn Björgvinsson.