Skákin kynnt fyrir nemendum

Skáksamband Íslands, Skákakademían og Skákskóli Íslands standa fyrir skákheimsókn í Skagafjörð, Blönduós og Skagaströnd dagana 17.-19. apríl. Skólar eru heimsóttir og skákin kynnt nemendum. Um kynninguna sjá Stefán Bergsson, framkvæmdastjóri Skákakademíunnar og Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands.

 

 

Í gær, miðvikudag, var farið í heimsókn í Skagaströnd. Þar var skáklistin kynnt fyrir öllum nemendum skólans en nemendum var skipt upp í fjóra mismunandi aldursflokka. Að því loknu var haldið í Kántrýbæ en þar var skáksett gefið og vígði Stefán og Magnús Sólberg, nemandi í Höfðaskóla taflsettið í skák sem endaði með jafntefli.

Í dag, fimmtudag, verður farið í heimsókn í Blönduskóla og skákin kynnt fyrir nemendum fram að hádegi. Eftir hádegi verður haldið í sundlaugina þar sem sundlaugarsett verður vígt og geta þá sundlaugargestir tekið skák í heita pottinum!

Á morgun, föstudag verður svo skákkennsla í Árskóla í Sauðárkróki. Þá verður Hannes Hlífar Stefánsson, stórmeistari í skák og kennari við Skákskóla Íslands, kominn í hópinn. Sundlaugarsett verður gefið í Sundlaug Sauðárkróks sem og sundlaugarnar í Varmahlíð og Hofsós.

Á föstudagskvöldið hefst Skákþing Norðlendinga sem fram fer í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Meðal keppenda þar verður Hannes Hlífar.

Meðfylgjandi er myndir frá heimsókninni í Skagaströnd.

/Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir