Skáknámskeið í Sólgarðaskóla gekk vel
Hið árlega skáknámskeið Sólgarðaskóla gekk vel, segir á heimasíðu Grunnskólanum austan Vatna. Jóhannes Ríkharðsson og Örn Þórarinsson hafa staðið fyrir þessu námskeiði með prýði, og nemendur allir orðnir vel færir í þessari eðlu íþrótt.
Enda var það svo, að á Degi nemenda í vetur buðu nemendur sjálfir upp á skák-kennslu, og gátu þá gestir og gangandi í smiðju Sólgarðaskóla spreytt sig á að læra og iðka skák. Einnig gat fólk látið spá fyrir sér í sömu smiðju. HÉR, má sjá myndir frá skáknámskeiðinu á Sólgörðum, og skáksmiðjunni á Degi nemenda á Hofsósi.