Skátar í Varmahlíð gera góðverk
Dagana 18. - 22. febrúar eru haldnir Góðverkadagar um land allt en Góðverkadagarnir eru ný útfærsla á nær aldagamalli hefð og loforði skáta um að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag. Á mánudaginn sl. létu skátarnir í Varmahlíð gott af sér leiða og gerðu góðverk fyrir samfélagið. Þá fór hver flokkur í eitt hverfi og tíndu rusl í umhverfinu.
Duglegar stelpur gera fínt í Varmahlíð á Góðverkadögunum. Mynd: Varmahlíðarskóli
Samkvæmt heimasíðu Varmahlíðarskóla tók yngsti flokkurinn Norðurbrúnina og Laugarveginn, miðflokkurinn tók Birkimelinn, kringum leikskólann og Furulundinn, elsti flokkurinn fór svo fyrir framan Kaupfélagið og bankann.
„Stóðu skátarnir sig frábærlega, voru áhugasöm og tíndu mikið af rusli,“ segir á heimasíðunni.
Markmiðið með verkefninu „Góðverk dagsins“ er að hvetja landsmenn til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna náungakærleik, vináttu, hjálpa öðrum og gera góðverk. Enn fremur segir á síðunni að velvildin og vináttan sem felst í að rétta öðrum hjálparhönd, óumbeðið og án skilyrða er dýpri og sannari en almenn hjálpsemi eða dagleg aðstoð – við köllum það góðverk.
Hér má sjá skoða fleiri myndir frá deginum.