Skemmtiferðaskip af stærri gerðinni

Það var engu líkara en ný eyja væri risin úr hafi í norðri í gær þegar blaðamaður átti leið um Fljótin. Myndin er tekin úr Flókadal um kvöldmatarleytið og úti fyrir Haganesvíkinni blasti við „eyjan“ sem sjá má fyrir miðri mynd. Við nánari athugun reyndist vera um skemmtiferðaskip að ræða, líklega stærsta skemmtiferðaskip sem komið hefur til landsins, en frá því var greint hér á Feykir.is að umrætt skipt væri á leið til Akureyrar.

Fleiri fréttir