Skemmtileg dagskrá á Vetrarleikum
Um helgina verður aldeilis fjör í fjallinu því þá verða haldnir Vetrarleikar á Skíðasvæðinu í Tindastól. Þar verður ýmislegt skemmtilegt í boði fyrir alla fjölskylduna, m.a. þrautabrautir, brettabrun, björgunarbátar fyrir yngri kynslóðina og fyrir þá sem vilja verður boðið upp á ævintýraferð útí óvissuna. Laugardagskvöldið endar svo með kvöldvöku og skemmtun í reiðhöllinni Svaðastöðum. Svo byrjar fjörið í fjallinu á ný morguninn eftir.
Skíðasvæðið verður opið frá kl. 10-16 en auk dagskrár Vetrarleikanna verður opið í gönguskíðabraut, brettabraut, sleða- og slöngubraut. Þátttökugjald er 1500 kr. á mann fyrir 4 ára og eldri, lyftugjald er ekki innifalið.
Dagskrá Vetrarleikanna 25.-26. febrúar verður eftirfarandi:
Laugardagur 25. febrúar
kl. 10:00 Skíðasvæðið í Tindastól opnar
Vetrarleikarnir settir
Fyrirkomulag leikanna kynnt
kl. 11:00 Ævintýrabrautin opnar - Þraut og braut
kl: 12:00 Hádegishlé - Fiskur í fjalli (grillaður fiskur)
Arctic Rafting með stóru bátana
kl. 13:00 Þraut og braut
Arctic Rafting með stóru bátana
Björgunarsveitin með björgunarbáta fyrir yngri kynslóðina
kl. 14.00 Brettabrun
kl. 15:30 Ævintýraferð út í óvissuna.
kl. 19:30 Kvöldvaka og skemmtun í reiðhöllinni Svaðastöðum,
útdráttarverðlaun og fleira skemmtilegt með hestamönnum
Sunnudagur 26. febrúar
kl. 10:00 Skíðasvæðið opnar
kl. 10:30 Skíðaleikar
Foreldrar og börn keppa
Samhliðasvig
Stiga sleða fjör í brekkunni
kl. 11:00 Litboltastuð í fjallinu (ath. þarf að greiða sér)
kl. 12:00 Hádegishlé
kl. 13:00 Skíðaleikar
Samhliðasvig/Litboltastuð í fjallinu (ath. þarf að greiða sér)
Allir í fjallið!