Skemmtileg uppskeruhátíð í gær

Í gær hélt unglingaráð körfuknattsleiksdeildar Tindastóls uppskeruhátíð fyrir yngri flokkana þar sem rúmlega 200 manns, bæði iðkendur og foreldrar, mættu og skemmtu sér hið besta. Veittar voru viðurkenningar fyrir þátttöku hjá þeim yngstu og síðan einstaklingsverðlaun hjá þeim flokkum sem tóku þátt í Íslandsmótinu. Iðkendur í minnibolta og míkróbolta fengu þátttökuviðurkenningar í formi verðlaunapenings um hálsinn.

Í máli Eiríks Loftssonar, formanns unglingaráðs, kom fram að alls tóku átta flokkar þátt í Íslandsmótinu en þeim til viðbótar var starfsemi í 5 aldursflokkum til. Alls voru því 13 aldursflokkar í starfinu í vetur.

Einstaklingsviðurkenningar hlutu eftirfarandi leikmenn:

Minnibolti stúlkna – Ásta Margrét Benediktsdóttir

Áhugi og ástundun: Hera Sigrún Ásbjarnardóttir

Mestar framfarir: Hafdís Lind Sigurjónsdóttir

Leikmaður ársins: Dagmar Björg Rúnarsdóttir

·         Luku Íslandsmótinu í B-riðli.

·         Spiluðu samtals 12 leiki.

7. flokkur stúlkna – Hrafnhildur Sonja Kristjánsdóttir

Áhugi og ástundun: Bríet Lilja Sigurðardóttir

Mestar framfarir: Jóna María Eiríksdóttir

Leikmaður ársins: Linda Þórdís Róbertsdóttir

·         Fengu silfurverðlaun í Íslandsmótinu.

·         Spiluðu samtals 15 leiki.

9. flokkur stúlkna – Halldór Halldórsson og Karl Jónsson

Áhugi og ástundun: Ólína Sif Einarsdóttir

Mestar framfarir: Árdís Eva Skaftadóttir

Leikmaður ársins: Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir

·         Kláruðu tímabilið í B-riðli.

·         Spiluðu samtals 16 leiki auk eins bikarleiks.

Stúlknaflokkur – Halldór Halldórsson og Karl Jónsson

Áhugi og ástundun: Helena Þórdís Svavarsdóttir

Mestar framfarir: Þóra Karen Ágústsdóttir

Leikmaður ársins: Helga Þórsdóttir

·         Kláruðu tímabilið í C-riðli.

·         Spiluðu samtals 15 leiki auk eins bikarleiks.

8. flokkur drengja – Borce Ilievski

Áhugi og ástundun: Hlynur Freyr Einarsson

Mestar framfarir: Arnar Freyr Stefánsson

Leikmaður ársins: Leó Snær Konráðsson

·         Kláruðu tímabilið í B-riðli.

·         Léku samtals 15 leiki.

9. flokkur drengja – Kári Marísson

Áhugi og ástundun: Finnbogi Bjarnason

Mestar framfarir: Bjarni Þórir Tómasson

Leikmaður ársins: Pétur Rúnar Birgisson

·         Luku Íslandsmótinu með sigri í B-riðli.

·         Léku samtals 15 leiki í Íslandsmóti.

·         Léku fjóra leiki í bikarkeppninni og urðu Bikarmeistarar.

10. flokkur drengja – Kári Marísson

Áhugi og ástundun: Þröstur Kárason

Mestar framfarir: Agnar Ingi Ingimundarson

Leikmaður ársins: Friðrik Þór Stefánsson

·         Kláruðu tímabilið í B-riðli.

•Léku samtals 16 leiki auk tveggja bikarleikja.

Drengjaflokkur – Borce Ilievski

Áhugi og ástundun: Ingvi Rafn Ingvarsson

Mestar framfarir: Ingvi Rafn Ingvarsson

Leikmaður ársins: Pálmi Geir Jónsson

·         Léku 14 leiki í Íslandsmótinu, unnu 7 og töpuðu 7.

·         Lentu í 4. sæti í sínum riðli í Íslandsmótinu.

·         Töpuðu fyrir KR í 8-liða úrslitum.

·         Léku einn leik í bikarkeppninni.

Fleiri myndir er hægt að nálgast á Tindastóll.is

Fleiri fréttir