Skemmtilegt á skíðum

Páskahelgin gekk vel í Tindastólnum um síðustu helgi en samkvæmt upplýsingum frá staðarhaldara komu 1120 manns í lyftuna fá skírdegi til annars í páskum. -Það var hér sleðarall hjá strákunum og spyrna í norðanverðri skíðabrekkunni og má segja að þetta hafi heppnast með miklum ágætum og eiga strákarnir sem í þessu stóðu mikið hrós fyrir vasklega framgöngu, segir Viggó Jónsson.

-Veðrið var alveg dásamlegt og ekki hægt að hafa það betra það er bara þannig. Margt aðkomufólk og allt skemmtilegt nema hvað leiðin hingað og planið er lítið ferðamannavænt og algjörlega okkur til skammar en það verður að vera þannig þar til við fáum fjármagn frá ríkinu til að klára þetta mál, segir Viggó en að hans mati hefur það verið tafið eins og hægt er. -Það er verið að tala um ferðamennsku allt árið hef ég heyrt hjá yfirvöldum þessa lands, en ég gæti sagt mörg orð um þetta, en ætla ekki að gera það núna, segir hann.

Skíðasvæði hefur verið opið í vikunni enda gott veður og verður það áfram næstu vikur á meðan einhver nennir að renna sér í brekkunum, ein og Viggó orðar það.

Seinnipartinn í mánuðinum er fyrirhugað að  halda spyrnukeppni í brekkunum og munum við slútta þannig, segir Viggó en það verður auglýst síðar.

Það má fylgja með að skíoðasvæðið opnaði klukkan 9 í morgun og verður opið til kl 19 í dag og eru aðstæður allar mjög góðar samkvæmt Fésbókarsíðu skíðasvæðisins.

Fleiri fréttir