Skemmtilegur 17. júní á Hvammstanga

Á Hvammstanga varð að flytja þjóðhátíðardagskrá 17. júní inn í Íþróttamiðstöðina vegna slæms veðurs en þó höfðu hestamenn fjölmennt í í þjóðbúninga- og hestamannamessu í Staðarbakkakirkju um morguninn.

Leó Örn Þorleifsson oddviti sveitarstjórnar flutti hátíðarræðu og fjallkonan sem að þessu sinni var túlkuð af Fanney Skúladóttur flutti ávarp og með henni voru þær Margrét Ylfa Þorbergsdóttir og  Heiða Bára Pétursdóttir. Ýmislegt var til gamans gert m.a. keppti starfsfólk Grunnskóla Húnaþings vestra við nemendur í 10. bekk skólans í körfubolta í gríðarlega jöfnum og spennandi leik sem endaði þannig að grípa þurfti til vítakeppni til að fá fram úrslit. Þar höfðu nemendur 10. bekkjar betur. Utandyra léku krakkanir sér í froðurennibraut sem sett hafði verið upp hjá Íþróttamiðstöðinni og var mikið rennt sér í skemmtilegri froðunni.

Keppni í ökuleikni var svo háð á bílaplaninu hjá Íþróttamiðstöðinni. Keppnin fólst í því að aka á fjórhjóli milli keila og leysa ákveðin verkefni á leiðinni. Í karlaflokki bar Páll Sigurður Björnsson sigur úr býtum og Ragnheiður Sveinsdóttir í kvennaflokki.

Fleiri fréttir