Ski- Racers í Tindastóli
Það var líf og fjör hjá krökkunum sem komu á skíðaæfingu í Tindastól um helgina en þar voru á ferðinni meðlimir Ski- Racers úr Kópavogi. Tilgangur þess félags er að skapa félagsmönnum sínum aðstöðu til skíðaiðkunar með áherslu á afreksþjálfun á sviði skíðaíþróttarinnar.
Æfingin sem haldin var á Tindastóli sl. sunnudag var til að undirbúa Ski- Racers krakka fyrir æfingabúðir í Landgraf í Hollandi sem fara fram í þessari viku.
Af skíðasvæðinu í Tindastóli er það að frétta að nú er verið að gera klárt til þess að geta farið að opna en það mun verða auglýst síðar.