Skíðakennsla hefst 21. mars
Skíðadeild Tindastóls ætlar að standa fyrir skíðakennslu fyrir byrjendur sem og lengra komna en samkvæmt heimasíðu deildarinnar hefur nokkur eftirspurn verið eftir slíku. Kennslan hefst miðvikudaginn 21. mars og stendur til 25. mars.
Kennt verður í eina klst. í senn og geta krakkarnir fengið búnað á leigunni endurgjaldslaust á meðan á námskeiði stendur en einnig geta foreldrar fengið búnað endurgjaldslaust í einn dag. Markmiðið námskeiðsins er að krakkinn verði skíðandi og geti tekið lyftu eftir námskeiðið. Skráning fer fram frá 15. til 18. mars í fjallinu.
Nú er tækifæri að koma sér í fjallið og nýta sér þetta tækifæri.