Skíðakrakkar með 5 verðlaunapeninga frá Jónsmóti

Þann 4. – 5. mars sl. fóru nokkrir ungir og efnilegir krakkar úr skíðadeild Tindastóls til Dalvíkur og tóku þátt í hinu árlega Jónsmóti Skíðafélags Dalvíkur. Að sögn mótshaldara gekk mótið einstaklega vel í ár, veðrið lék við gesti sem fengu óvænta og ógleymanlega norðurljósasýningu á föstudagskvöldinu.

Tindastólskrökkunum  gekk mjög vel á mótinu og höfðu gaman af enda komu þau heim með 5 verðlaunapeninga og mátti litlu muna að þeir yrðu fleiri. Úrslit mótsins er hægt að nálgast HÉR

-Það er nóg framundan hjá æfingarkrökkunum hjá skíðadeild Tindastóls eins og innanfélagasmót, Sauðárkróks  Bakarísmót, Íslandmót hjá 13-15 ára og síðast en ekki síst þá eru það Andrésar Andarleikarnir þar sem við stefnum á að vera með c.a 50 keppendur, segir Sigurður Bjarni Rafnsson formaður skíðadeildarinnar.

Á myndinni eru kátir skíðakrakkar úr Tindastóli en það eru þau Oddný Sara, María Dögg, Aron Már, Karen Lind, Birna María, María og Hákon Ingi.

Fleiri fréttir