Skokkarar reima á sig skóna
Í vikunni hófust reglulegar æfingar skokk- og gönguhóps sem starfar á Sauðárkróki undir leiðsögn Árna Stefánssonar íþróttakennara. Hópurinn stundar fjölbreytta hreyfingu sem samanstendur af göngu, skokki, hjólreiðum, fjallaferðum, fjölskyldusamveru, fjöri, púli og teygjum.
Æfingar eru fjórum sinnum í viku og kemur hópurinn saman hjá sundlauginni þaðan sem er gengið, skokkað eða hjólað í um 50 mínútur, auk þess sem teygjur og styrktaræfingar eru gerðar undir leiðsögn.
Að sögn Árna er kjarninn í hópnum búinn að æfa lengi en alltaf bætast nýir félagar í hópinn og tekur Árni fram að farið sé varlega af stað með byrjendur. Hann segir mikinn áhuga fyrir hlaupum og annarri hreyfingu á Sauðárkróki og til að mynda séu 30 einstaklingar á staðnum sem hafa hlaupið maraþon.
Æfingar standa yfir fram í lok ágúst og er verð fyrir sumarið kr 15.000. Veittur er fjölskylduafsláttur þar sem hálft gjald er fyrir aðra í fjölskyldunni. 1000 kr af þátttökugjaldi renna til góðs málefnis. Allir eru velkomnir að koma og prófa.