Skólafólk fær helmings afslátt í bíó í kvöld
feykir.is
Skagafjörður
23.10.2012
kl. 11.40
Önnur sýning myndarinnar Sundið eftir Jón Karl Helgason verður í kvöld kl. 20:00. Nemendur Fjölbrautaskólans sem og Árskóla fá 50% afslátt. Myndin ætti að höfða til unga fólksins enda sýnir hún hugdjarfa menn með háleit markmið reyna sig við náttúruöflin.
Myndin var frumsýnd á Sauðárkróki sl. sunnudagskvöld og fékk góðar viðtökur sýningargesta. Sjá HÉR
