Skoskir gestir læra til verka

Á vef Byggðasafns Skagafjarðar er sagt frá því að undanfarna daga hafi sex fulltrúar á vegum skosku samtakanna Arch Network,sem eru samstarfsaðilar Fornverkaskólans, verið í Skagafirði að kynna sér hvernig staðið er að varðveislu og kynningu menningararfs og -erfða, einkum byggingararfi og varðveislu hans.

Bryndís Zoëga, verkefnisstjóri Fornverkaskólans, skipulagði ferðir hópsins og leiðsagði honum. Heimsókn hópsins var hluti af Evrópuverkefni sem Fornverkaskólinn er þátttakandi í og nefnist CHIST eða Cultural Heritage Interpretation and Sustainable Tourism. Verkefnið er styrkt af Menntaáætlun Evrópusambandsins. Þetta er í annað sinn sem Fornverkaskólinn fær heimsókn frá Skotlandi í þessum erindagjörðum.

Gestirnir fengu tilsögn í torftöku og torfhleðslu, skoðuðu hvernig staðið hefur verið að viðgerðum á gömlum byggingum og báru saman mismunandi gerðir þeirra. Auk húsa á Tyrfingsstöðum voru kirkjurnar í Gröf, Hólum, Reynistað og Víðimýri skoðaðar, sem og torfbæirnir á Hólum og í Glaumbæ og bæjardyrahúsið á Reynistað. Þá kynntu þeir sér hvernig sögulegt efni er útbúið fyrir ferðamenn og hvernig til stendur að kynna það.

Áhugi erlendra aðila á byggingararfi Íslendinga og hvernig hann er varðveittur og nýttur vex með ári hverju. Fleiri hópar eru væntanlegir erlendis frá í sömu erindagjörðum og Skotarnir. Á vef Byggðasafnsins segir: „Sjálf höfum við svo sannarlega gagn af heimsóknum sérfæðinga frá útlöndum til skoðanaskipta og lærdóms og til að sannfæra okkur um að óhætt sé að halda ótrauð áfram á sömu braut.“

Fleiri fréttir