Skráning hafin í Árnahlaup

Árni Stefánsson íþróttakennari og hlaupaþjálfari verður 60 ára á þessu ári. Af því tilefni verður hlaupið „Árnahlaup“ honum til heiðurs, laugardaginn 29. júní á Sauðárkróki. Í Árnahlaupi geta allir verið með, ungir sem aldnir. Hægt er að velja um þrjár hlaupaleiðir og verður ræst í þær allar á íþróttavelli við Sundlaug og þar enda einnig allir.

 

Kl. 10:00   Fjallahlaup, keppnishlaup - sama leið og hlaupin var á landsmóti 2004, svokallaðar Kimbastaðagötur, 17,6 km með tímatöku og aldurskiptingu.

39 ára og yngri  40-49 ára og 50 ára og eldri.

Skráning í þetta hlaup fer fram á hlaupasíðunni hlaup.is og er skráningargjald kr. 3000. Skráningu lýkur föstudagskvöldið 28. júní kl. 18:00.

Einnig má skrá sig að morgni hlaupadags frá kl. 8:00-9:00 á íþróttavellinum á Sauðárkróki, en þá er gjaldið hærra: kr. 4.000

Innifalið í skráningargjaldi er:

  • Þátttökugripur
  • Verðlaun fyrir fyrstu 3 sæti í hverjum aldursflokki kvenna- og karla. M.a. eru hlaupaskór frá Asics fyrir 1. sæti í hverjum flokki, karla og kvenna auk verðlaunagrips.
  • Tímataka
  • Merkt handklæði
  • Vatn og orkudrykkur á leiðinni
  • Hressing í marki
  • Brautar- og öryggisgæsla á leiðinni
  • Frítt í sund

Kl. 11:00   Hlaup/ganga um Skógarhlíð og niður Grænuklauf (6,6 km),

eða hringur um Litla-skóg og niður Grænuklauf (2 km).
Ekkert skráningargjald er í þessi hlaup, en þátttakendur þurfa að skrá sig á staðnum (íþróttavellinum) áður en lagt er af stað.

Allir þátttakendur fá viðurkenningu og frítt verður í sund að hlaupi loknu.

Munið að skrá ykkur svo allir verði með í útdráttarverðlaununum.

 

Kl. 12:00   Grill og skemmtiatriði.
Verðlaunaafhending og vegleg útdráttarverðlaun frá asics og fleirum.
Árni heiðraður.

Síða hlaupsins á Facebook er
Facebook.com/Árnahlaup

Hægt er að hafa samband við skipuleggjendur á sirry@fnv.is og kristjan@fnv.is.

Afhending gagna í lengsta hlaupið fer fram kl. 20:00 – 22:00 á föstudag við Sundlaug Sauðárkróks eða á íþróttavelli að morgni hlaupadagsins kl. 08:00-09:00

 

Fleiri fréttir