Skráning í Sumar T.Í.M. þessa viku

Skráning í Sumar T.Í.M., tómstundir, íþróttir og menningu fyrir 5-12 ára gömul börn í Skagafirði, stendur yfir þessa viku. Skráningin hófst í gær, en þá var haldinn kynningarfundur í Húsi Frítímans þar sem dagskráin var kynnt og spurningum foreldra svarað.

Í sumar verða í boði mismunandi íþróttagreinar, tómstunda- og menningarnámskeið. Á Sauðárkróki hefjast námskeiðin mánudaginn 10. júní og standa til 9. ágúst. Á Hofsósi verða námskeið frá 24. júní til 4. júlí, ef næg þátttaka fæst. Á Hólum í Hjaltadal verða námskeið frá 3. júní til 28. júní.

Í auglýsingu frá frístundasviði er bent á að foreldrar með lögheimili í Sveitarfélaginu Skagafirði eigi rétt á Hvatapeningum einu sinni á ári að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Upplýsingar um námskeiðin og reglur um greiðslu Hvatapeninga er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins.

Rafræn skráning verður á heimasíðunni tim.skagafjordur.is. Upplýsingar veitir Þorvaldur í síma 660 4639 eða gegnum netfangið valdi@skagafjordur.is. Umsóknarfrestur rennur út á föstudaginn kemur, 31. maí.

 

Fleiri fréttir