Skriðsund fyrir fullorðna
Sunddeild Tindastóls ætlar að bjóða fullorðnu fólki upp á skriðsundnámskeið fyrir byrjendur sem og lengra komna sem og þeirra sem vilja bæta tækni í öðrum sundgreinum. Byrjað verður þriðjudaginn 20. mars klukkan 18-19 í Sundlaug Sauðárkróks. Kennari verður Sigurjón Þórðarson.
Á námskeiðinu verður byrjað frá grunni og öll undirstöðuatriði skriðsunds kennd. Á heimasíðu Tindastóls segir „að nú sé tækifærið fyrir þá sem kunna ekki neitt eða kunna eitthvað og langað lengi til að bæta sína tækni í sundi og vilja frekari tilsögn í sundi, eða að láta leiðrétta hjá sér sundið“.
Sjá nánar HÉR