Skrímsli í París sýnd í Selasetrinu

Selasetur Íslands á Hvammstanga ætlar að sýna kvikmyndina Skrímsli í París, með íslensku tali, sunnudaginn 11. mars nk., annars vegar kl. 14 og hins vegar kl. 16. Samkvæmt Norðanátt.is er nauðsynlegt að bóka miða fyrirfram á sýninguna þar sem sumir eru að koma langt að.

Miðaverð er 950 kr. og sjoppa verður á staðnum. Bókanir fara fram á selasetur@selasetur.is eða með því að hringja í síma 690-8050.

Um Skrímsli í París:
Skrímsli gengur lausum hala í París og borgarbúar eru skelfingu lostnir! Það fellur í skaut feimna sýningarstjórans Emile og litríka uppfinningamannsins Raoul að hafa hendur í hári þess. Þeir slást í lið með stórhjarta söngkonunni Lucille og sérvitrum vísindamanni til þess að bjarga skrímslinu frá vægðarlausum og metorðagjörnum lögreglustjóra, því að skrímslið er í raun bara ofvaxin en meinlaus fló!

 

Fleiri fréttir