Skyndihjálparnámskeið á vegum Hvammstangadeildar RKÍ

Hvammstangadeild Rauða Kross Íslands býður upp á skyndihjálparnámskeið sem haldið verður í safnaðarheimilinu á Hvammstanga föstudaginn 3. febrúar nk., kl. 16 -22.

Samkvæmt Fésbókarsíðu Hvammstangadeildar RKÍ eru nokkur sæti laus á námskeiðið en leiðbeinandi verður Karl Lúðvíksson. Þeir sem áhuga hafa geta sent póst í gegnum Fésbókarsíðu deildarinnar eða haft samband við Rakel í síma 695-1178.

 

 

Fleiri fréttir