Sláttur hafinn í Skagafirði

Þó ekki hafi viðrað sérstaklega vel norðanlands það sem af er sumri hafa bændur samt sem áður tekið fram heyvinnuvélar og hafið heyskap. Á ferð blaðamanns Feykis fram Sauðárkróksbraut fyrr í dag sást til Ómars bónda á Gili vera að slá og búið var að rúlla á Hafsteinsstöðum.

Þá barst það til eyrna blaðamanns að Jón Einar á Hlíðarenda í Óslandshlíðinni austan vatna væri líka byrjaður. Þetta mun vera í seinna lagi sem heyskapur byrjar í Skagafirði á síðari tímum en það þótti ekki óalgengt á árum áður að heyskapur byrjaði ekki fyrr en komið væri fram að mánaðarmótum júní – júlí.

Fleiri fréttir