Slökkviliðið flytur út fyrir verslun

Til þess að hægt verði að opna bráðabyrgðar verslun á Hofsósi þurfti slökkviliðið í Skagafirði að flytja út úr sínum helmingi í húsnæði sem er í eigu slökkviliðsins og björgunarsveitarinnar Grettis. Að sögn Vernharðs Guðnasonar slökkviliðsstjóra var það þeim í slökkviliðinu ljúft og skylt að geta lagt eitthvað af mörkum svo hægt verði að opna verslun með nauðsynjar fyrir Hofsósinga og nærsveitir.

„Slökkviliðið flytur því tímabundið úr slökkvistöðinni svo af þessu geti orðið. Slökkviliðið hefur komið sér fyrir í gamla frystihúsinu á meðan að verslun KS verður endurbyggð eftir brunann,“ segir Vernharð.

Fleiri fréttir